Glæsilegt framtak !

Djöfull lýst mér vel á þessa hugmynd . Það er óskandi að einhver af þeim sjónvarpstöðvum sem hér eru keypti sýningarréttinn á þessum þáttum .

Hvernig væri að setja upp undirskriftalista og senda hann svo á sjónvarpstöðvarnar ?

Bruce Lee klikkar aldrei . Þegar að ég var polli horfði ég mikið á myndirnar hans og sat stjarfur fyrir framan imban og hreyfði hendur og fætur í takt við kappann og gaf frá mér ýmishljóð , öðrum fjölskyldu meðlimum eflaust til mikillar "gleði" Smile

 ... það er spurning hvort að maður eigi að setja eina í vídeótækið í kveld og æfa sig í Kung Fu hljóðunum ?


mbl.is Kínverjar minnast Bruce Lee í nýjum sjónvarpsþáttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Totti sækir um pólitísk hæli !

Í kvöld í Manchester borg voru Rómverjar teknir af lífi á 93 mínútum . Annar eins leikur hefur ekki sést í mörg ár . Fyrir leik stóð Róma betur að vígi með 2 -1 í forgjöf eftir fyrri leikinn .

Fljótlega eftir að dómarinn flautaði til leiks hófst niðurlægingin . Michael Carrick skoraði fyrsta markið á 11 mínútu , Alan Smith var næstur á þeirri 17 , Rooney tveimur mínútum seinna og líklega besti knattspyrnumaður í heimi rétt fyrir lok fyrri hálfleiks . Staðan því 4-0 í hálfleik , Manchester United í vil .

Rómverjar gengu niðurlútir til búningsherbergja á meðan United menn brostu út að eyrum og sérstaklega Sir Alex.

Seinni hálfleikur byrjaði af krafti . Hinn eitursnjalli Cristiano Ronaldo skoraði sitt annað mark á 49 mínútu og staðan orðin því 5-0 . Michael Carrick skoraði svo mark leiksins á 60 mínútu þegar hann skaut bylmingskoti fyrir utan teig upp í samskeytin og átti hinn skrautlegi Doni ekki séns , enda kominn í enn eina skógarferðina .

Pastaheilarnir úr Rómarborg náðu þó að klóra aðeins í bakkann með því að minnka muninn í 6-1 þegar að rúmar 20 mínútur voru eftir en United menn voru ekki hættir því að Evra negldi síðasta naglann í kistu Rómverja þegar að hann átti gott skot fyrir utan teig sem fór í stöngina og inn .

Þvílík unun að horfa á þennan leik. Rómverjar áttu bara ekki séns í Manchester United frá fyrstu mínútu , á tímabili var einungis eitt lið á leikvangi draumana og það voru heimamenn . Rómverjar sem mættu með betri stöðu á leikvang draumanna fengu ekki draum sinn rættan , heldur gengur þeir á brott með martröð og mikla niðurlægingu.

Ef að ég væri Francesco Totti þá myndi ég sækja um pólitískt hæli sem flóttamaður í Frakkandi . Ég færi ekki heim á Ítalíu . Totti sparaði ekki stóru orðin fyrir leiki liðsins um sitt eigið ágæti . Sá fékk að éta þau orð ofan í sig eins og sannur ítali étur spaghetti.
mbl.is Man.Utd. rótburstaði Roma, 7:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband